February 12, 2020

Citroën C5 Aircross SUV

Komdu og prófaðu nýja Citroën C5 Aircross SUV með kraftmikilli vél, 8 gíra sjálfskiptingu og Grip Control spólvörn sem ásamt einstakri 23 cm. veghæð gerir hann framúrskarandi í snjó og hálku.

Komdu og prófaðu nýja Citroën C5 Aircross SUV með kraftmikilli vél, 8 gíra sjálfskiptingu og Grip Control spólvörn sem ásamt einstakri 23 cm. veghæð gerir hann framúrskarandi í snjó og hálku.

Komdu og prófaðu þennan tímamótabíl í 100 ára sögu Citroën sem hefur tekist snilldarvel að smíða einstakan lúxusjeppa á einstaklega hagstæðu verði þar sem aðalsmerki Citroën, einstök fjöðrun, leikur lykilhlutverk. Kynntu þér örugg gæði Citroën.

MÖGNUÐ AKSTURSÞÆGINDI: BYLTINGARKENND SNJÖLL FJÖÐRUN OG FRAMÚRSKARANDI SÆTI

Fjöðrunin er byltingarkennd en snjöll, afar einföld en jafnframt áhrifarík. Á meðan hefðbundin fjöðrunarbúnaður er byggður upp af gormi og dempara með gúmmípúða í enda fjöðrunar þá bætir Citroën við vökvastoppara bæði að ofan og neðan í demparanum sjálfum. Fjöðrunin virkar sérlega vel á ójöfnur í vegum en einnig í hvössum holum þar sem högg geta verið hörð eins og við dæmigerðar íslenskar aðstæður.

FRAMÚRSKARANDI VÉLAR, 8 ÞREPA SJÁLFSKIPTING OG SPÓLVÖRN

C5 Aircross SUV jeppinn er búinn Grip Control spólvörninni frá Citroën sem er einstakur drifbúnaður fyrir framdrifið sem kemur þér úr krefjandi aðstæðum í snjó, aur eða sandi. Hann er fáanlegur með nokkrum gerðum véla sem allar standast nýjasta mengunarstaðalinn Euro 6.2. Þær eru einstaklega sparneytnar og í boði með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu. Nýja 8 þrepa sjálfskiptingin eykur til muna sparneytni og þægindi í akstri. Í boði eru tvær bensínvélar, PureTech 180 hestafla með 8 þrepa sjálfskiptingu og PureTech 130 hestöfl með 6 gíra beinskiptingu. Tvær dísilvélar eru í boði með 8 þrepa sjálfskiptingunni, annars vegar 130 hestöfl og hins vegar 180 hestöfl og einnig fæst 130 hestafla dísilvélin með 6 gíra beinskiptingu.

SÚPER ÞÆGILEGUR: HÁR FRÁ GÖTU, BREIÐ SÆTI OG MEÐ STÆRSTA SKOTTIÐ Í SÍNUM FLOKKI

Þú átt eftir að falla fyrir rýminu. Citroën C5 Aircross SUV jeppinn er hár frá götu eða 23 cm. Citroën C5 Aircross SUV er útbúinn stærsta skotti í sínum flokki frá 580 til 720 lítrar og lengd hans 4,5 m gerir hann einstakan hvað rými varðar. Aftursætin þrjú eru einstök, jafnbreið og öll á sleðum, stillanleg og ótrúlega auðveld í notkun sem gerir m.a. kleift að hafa þrjá barnastóla í einu í bílnum. Nýr C5 Aircross SUV er með einstaklega mörg geymsluhólf og m.a kælibox fyrir miðju bílsins.

ÖRYGGIÐ ER EINSTAKT.

Í C5 Aircross SUV  eru 20 aksturskerfi sem aðstoða ökumanninn við aksturinn og veita aukið öryggi í akstri m.a. ef þreyta gerir vart við sig. Kerfin greina hugsanlegar hættur og lágmarka þannig hættu á árekstri.

CITROËN C5 AIRCROSS SUV BER AF Í SÍNUM FLOKKI

Progressive Hydraulic Cushions fjöðrunarkerfið

Hár frá götu eða 23 cm

Breið þægileg framsæti

20 aðstoðarkerfi sem tryggja öryggi í akstri

Einstaklega stórt skott allt að 720 lítrar

Öflug Grip Control spólvörn á framdrifið er snilld í snjónum

3 stök aftursæti, öll jafnbreið, með plássi fyrir þrjá barnastóla

Stafrænt mælaborð

Þráðlaus símahleðsla og Apple Carplay