March 2, 2021

Nýr rafmagnssendibíll frá Citroën kominn í forsölu

Brimborg kynnir glænýjan, langdrægan Citroën ë-Jumpy 100% hreinan rafmagnssendibíl sem væntanlegur er til landsins í apríl.

Brimborg kynnir glænýjan, langdrægan Citroën ë-Jumpy 100% hreinan rafmagnssendibíl sem væntanlegur er til landsins í apríl og mun Brimborg bjóða hann í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Forsalan á nýja rafsendibílnum er nú þegar hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.

  • Allt að 330 km drægni
  • Hraðhleðsla
  • Fjarstýrð forhitun
  • Opnanlegt þil til að flytja lengri hluti
  • Bakkmyndavél og blindpunktsaðvörun

SMELLTU TIL AÐ SKOÐA Ë-JUMPY

SKOÐA ÚRVAL Í VEFSÝNINGARSAL

ALLT AÐ 330 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll er 100% hreinn rafbíll með 50-75 kWh drifrafhlöðu. Drægni bílsins skv. WLTP mælingu er framúrskarandi eða allt að 330 km. Citroën ë-Jumpy er fáanlegur með eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa 11 kW innbyggðri hleðslustýringu.

HRAÐHLEÐSLA Í 80% DRÆGNI FRÁ AÐEINS 32-48 MÍNÚTUM
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða drifrafhlöðuna á 4:45 – 7:30 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð og næstum tóma drifrafhlöðuna má hlaða á 32-48 mínútum í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.

Citroën ë-Jumpy

Citroën ë-Jumpy

FJARSTÝRÐ FORHITUN TRYGGIR ALLTAF HEITAN BÍL
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll er með fjarstýrðri forhitun sem tryggir að bíllinn er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyCitroën® appinu ásamt því að fjarstýra forhitun.

RÍKULEGUR STAÐAL- OG ÖRYGGISBÚNAÐUR

Citroën ë-Jumpy er ríkulega búinn. Meðal ríkulegs staðal-og öryggisbúnaðar er bakkmyndavél með 180° víddarsýn, nálægðarskynjarar að framan og aftan, blindpunktsaðvörun, hraðastillir, öryggispúðar að framan og í hliðum, Bluetooth símabúnaður, ökumannssæti með armpúða, 7″ margmiðlunarskjár í mælaborði, varadekk og fjarstýrð forhitun. Citroën ë-Jumpy er með heilu þili milli hleðslurýmis og farþegarýmis með glugga og 180° opnun á afturhurðum. Citroën ë-Jumpy er fáanlegur með ýmsum aukabúnaði t.d með krossvið í gólfi hleðslurýmis og með rennihurð á báðum hliðum.

Citroën ë-Jumpy

MODUWORK – FELLANLEGT SÆTI OG LÚGA Á ÞILI TIL AÐ FLYTJA LENGRI HLUTI
Með Moduwork innréttingunni í Citroën ë-Jumpy er hægt að stækka hleðslurýmið með opnanlegri lúgu og niðurfellanlegu framsæti, hægt er að flytja allt að 4,026 m langa hluti með Moduwork innréttingunni.

Citroën ë-Jumpy

ALLT AÐ 6,6 M3 HLEÐSLURÝMI
Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 6,6 m3 með Moduwork innréttingingu, fellanlegu sæti og lúgu á þili til að flytja lengri hluti.

ÖRUGG GÆÐI CITROËN ERU STAÐFEST MEÐ 7 ÁRA VÍÐTÆKRI ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU
Örugg gæði Citroën ë-Jumpy eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðenda.

FORSALAN ER HAFIN Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Brimborg hefur hafið forsölu á glænýjum Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíl í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða hjá Brimborg í apríl og afhendingar til kaupenda hefjast í maí 2021.

Í Vefsýningarsal er að finna alla Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.

Citroën ë-Jumpy rafmagnssendibíll kostar frá 5.190.000 kr. og er fáanlegur í tveimur lengdum; millilangur og langur.

Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Citroën aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.

Citroën ë-Jumpy

SMELLTU TIL AÐ SKOÐA Ë-JUMPY

SKOÐA ÚRVAL Í VEFSÝNINGARSAL