CITROËN C1 Lækkað verð. Kynntu þér málið!
VERÐ OG BÚNAÐUR
Live
Verð frá 1.690.000 kr.
Vél i boði:
– 1,0 VTi bensín, 68 hestöfl
– ESP stöðugleikastýrikerfi með ASR Spólvörn
– Öryggispúðar að framan, í hliðum sæta og öryggispúðagardína
– Loftkæling (AC)
– Útvarp
– Rafdrifnar rúður að framan
– Fjarstýrð samlæsing
– LED ljós í framstuðara
– Hraðanæmt aflstýri
– 14″ Stálfelgur STAR
– Loftþrýstingsnemar á dekk
– Dagljósabúnaður
– Velti-og aðdráttarstýri
– Aftursætisbekkur niðurfellanlegur
– ISOFIX barnabílstólafestingar
Feel
Verð frá 1.760.000 kr.
Vél i boði:
– 1,0 VTi bensín, 68 hestöfl beinskiptur kr .1.760.000
– 1,0 VTi bensín, 68 hestöfl ETG sjálfskiptur kr .1.920.000
Feel búnaður umfram Live:
– 7“ Mirror margmiðlunarsnertiskjár
– Fjarstýring á útvarp og marmiðlunarkerfi í stýri
– 4 hátalarar
– USB tengi
– Aftursæti skipt 50/50 niðurfellanleg
– Bluetooth tengibúnaður fyrir síma og tónhlöðu
– Samlitir hurðarhúnar og speglar
– Höfuðpúðar á aftursætum
– Hæðarstillanlegt bílstjórasæti
– Varadekk
- Zebra áklæði
Shine
Verð frá 1.880.000 kr.
Vélar i boði:
– 1,0 VTi bensín, 68 hestöfl, beinskiptur kr 1.880.000
– 1,0 VTi bensín, 68 hestöfl, ETG sjálfskiptur kr 2.040.000
Shine búnaður umfram Feel:
– 15″ Álfelgur
– Krómaður rúðulisti á hliðum
– Hraðastillir ( cruise control )
– Leðurklætt stýrishjól
– Krómaður gírhnúður
– Svört glansáferð á framstuðara/svuntu
– Snúningshraðamælir
– Rafdrifnir speglar
– Wave áklæði
KOSTIR
Hönnun
Citroën C1 kallar fram bros á varir þínar. Smábíll með stóran karakter með björtum og glaðlegum framsvip.
Fjölbreytt val
Í boði eru þrjár búnaðarútfærslur (sjá hér fyrir ofan). Þú getur valið um 8 flotta liti og eins er hægt að velja sérlit á mælaborð.
Snarpur
Framúrskarandi beygjuradíus: 4,80 m
Mjúkt og nákvæmt aflstýri
Nettur
Nettur en rúmgóður: 3,46 m
Farangursrýmið er 196 lítrar og samtals 780 lítrar þegar aftursæti eru lögð niður
Vellíðan um borð
Notagildi: Fjölmörg geymsluhólf, hæðarstillanlegt sæti
Þægindi: Sjálfvirk miðstöð fáanleg sem aukabúnaður
Aðgengi: Farangurshlíf lyftist með afturhleranum til að auðvelda aðgang að farangursrýminu
Notadrjúg tækni
Flottur 7″ snertiskjár: Aldrei einn á ferð, alltaf tengdur. Með tilkomu snertiskjásins eru allar aðgerðir handhægar og öruggar. Bluetooth, 4 hátalarar og USB tengi.
Auðveld notkun: Lyklalaus aflæsing og ræsing er fáanleg sem aukabúnaður.
Auðveldur akstur: Bakkmyndavél sem fáanleg er sem aukabúnaður er tengd við 7″ snertiskjáinn.
Háþróaðir tengimöguleikar
Flottur 7″ snertiskjár: Aldrei einn á ferð, alltaf tengdur. Með tilkomu snertiskjásins eru allar aðgerðir handhægar og öruggar. Bluetooth, 4 hátalarar og USB tengi. Staðalbúnaður í Feel og Shine útfærslum.
Fjörmikill og rafmagnaður
VTi 68 hestafla eða VTi 82 hestafla vél úr PureTech-fjölskyldunni.
Ódýr rekstur
Eldsneytisnotkun frá einungis 3,8 l/100 km og losun koltvísýrings frá aðeins 88 g/km, þökk sé nýjustu kynslóð véla, þar á meðal e-VTi 68 Airdream sem státar af Stop&Start – Heildarþyngd er aðeins 840 kg.
FRAMMISTAÐA
Tækni og hagkvæmni
VTi 68 vélina er hægt að tengja við rafskiptu ETG skiptinguna. Þessi fimm gíra skipting býr yfir svokölluðum „skriðgír“ og bensíngjöfin er sérstillt til að auðvelda ræsingu og ýta undir þægilegri akstur.
Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri með EGT sjálfskiptingunni er aðeins: 4,2 lítrar á hverja 100 km, losun koltvísýrings 97 g á hvern km.
Nýjasta kynslóð bílvéla
Nýr Citroën C1 er einnig fáanlegur með nýrri VTi 82 vél úr PureTech-fjölskyldunni. Þessi nýja 1,2 lítra og þriggja strokka vél gefur 82 hestöfl með því að styðjast við snjalla, skilvirka og hagkvæma tækni.
Eldsneytisnotkunin er aðeins 4,3 lítrar á hverja 100 km og losun koltvísýrings er 99 g/km, jafnvel þótt vélin skili öflugum og þægilegum akstri.
Þægindi og hegðun á vegum úti
Ánægja og vellíðan á öllum vegum. Nýr Citroën C1 býður þér upp á mestu mögulegu þægindi en tryggir ávallt snarpan og öruggan akstur við allar aðstæður.
NÁNAR
Útlit
Nýr Citroën C1 undirstrikar afgerandi hliðarsvip sinn og leikandi létt útlit með kraftmiklum og einstökum stíl.
Ómótstæðileg hönnun ytra byrðisins er dregin enn betur fram með skyggðum bílrúðum, svörtum burðarbitum og (eftir útfærslum) þéttilistum úr krómi.
Einkennandi lýsing
Aðdráttaraflið er ógnarsterkt. Nýr C1 hrópar á athyglina og státar af LED-dagljósabúnaði eins og margir aðrir bílar í Citroën-fjölskyldunni.
Hinn lóðrétti dagljósabúnaður undirstrikar enn frekar glaðlegt yfirbragð og sterkan svip bílsins og gerir nýjan Citroën C1 enn tæknilegri í útliti.
Aðlaðandi litir
Nýr Citroën C1 er fáanlegur í átta afgerandi og nýtískulegum litum á borð við Caldéra Black, Gallium Grey, Carlinite Grey og Olive Brown og enn bjartari litir eru meðal annars White Lipizan, Smalt Blue, Scarlet Red og Sunrise Red.
Citroën C1 er glaðlegur og fjörlegur borgarbíll af bestu gerð.
Bjart innra rými
Nýr Citroën C1 er bjartur og ferskur, bæði að innan og utan. Hrein og bein hönnunin á mælaborðinu er skreytt með skærum litastrokum á upplýsingaskjánum, loftúttakinu og gírkassanum.
Frá innra rými bílsins stafar ljómandi bjartsýnum og glaðlegum anda, sætaklæðningin er í lifandi litum og til að fullkomna verkið eru bílhurðirnar að hluta til samlitar ytra byrði.
Vellíðan á hverjum degi
Nýr Citroën C1 er einnig afar hagnýtur bíll og öll hönnun hans miðar að því að gera hversdaginn einfaldari. Fjölnota farangursrýmið rúmar 196 lítra og aðgengi að því er gott þar sem hillan leggst saman þegar afturhlerinn er opnaður. Ef aftursætin eru lögð niður eykst burðargeta farangursrýmisins upp í 780 lítra.
Nýr Citroën C1 státar einnig af fjölmörgum eiginleikum sem auka þægindi þín:
-Hæð á ökumannssæti er stillanleg
-Sjálfvirk miðstöð er fáanleg sem aukabúnaður ásamt upphituðuð framsætum
Snilldarleg geymslurými
Nýr Citroën C1 felur í sér kröftuga og lifandi hönnun í bland við snurðulausa notkun og nauðsynlega eiginleika í dagsins önn.
Þetta er snaggaralegur bíll sem státar af hentugum og snilldarlegum geymslulausnum um allt innra rýmið (10 talsins), þar á meðal bollahöldurum og hanskahólfi sem getur rúmað eins lítra flösku.
Þægindi og hegðun á vegum úti
Ánægja, þægindi og áhyggjuleysi, hvar á vegi sem þú ert staddur. Nýr Citroën C1 býður þér hámarks þægindi um leið og hann tryggir snerpu og góða stjórn við hvaða aðstæður sem er.
Öryggi
Í nýjum C1 eru sex loftpúðar staðalbúnaður (að framan, á hliðum og í lofti í afturhluta bílsins) og einnig ESP-stöðugleikakerfi sem jafnar út flökt í bílnum ef hann rásar af leið og byrjar að missa veggrip.
Ný gerð af rafmagnsstýri tryggir nákvæman og ánægjulegan akstur, bæði í borginni og á vegum úti. Stilling fyrir hámarkshraða og mælir fyrir loftþrýsting í dekkjum leggja einnig sitt af mörkum til að aksturinn verði afslappaður.
7'' snertiskjár
Citroën hefur einsett sér að búa nýjan C1 með tækni sem einfaldar hversdaginn fyrir ökumanninn sjálfan. Snertikjárinn er sjö tommu að stærð og sprottinn af þeirri
hugmyndafræði sem gerir þér kleift að sýsla á einum stað með alla tölvustýringu bílsins og afþreyingarefni (t.d. síma og hljómtæki). Snertiskjárinn er staðalbúnaður í Feel og Shine útfærslum.
Bakkmyndavél
Nýr Citroën C1 er einnig fáanlegur með ýmsum aðgengilegum hjálpartækjum sem gera aksturinn enn þægilegri en áður.
Til að einfalda þá kúnst að smeygja sér inn í þröngt stæði er bíllinn fáanlegur með bakkmyndavél og þegar sett er í bakkgír birtast myndir úr henni sjálfkrafa á sjö tommu snertiskjánum.
Lyklalaust aðgengi og ræsing
Nýr Citroën C1 er einnig fáanlegur með lyklalausri ræsingu og aðgengi. Nú er engin þörf á því að draga upp bíllyklana því að bíllinn nemur lyklakortið í fórum þínum þegar þú nálgast.
Þér dugir að koma við handfangið til að komast inn í bílinn.
Brekkuaðstoðin
Brekkuaðstoðin er annað hjálpartæki sem er staðalbúnaður í nýjum Citroën C1. Þessi valkostur getur komið sér vel í borginni, t.d. þegar ekið er upp úr bílakjöllurum eða bílastæðahúsum. Þegar halli brekkunnar er yfir 3% heldur brekkuaðstoðin bílnum kyrrum í tvær sekúndur áður en hann keyrir af stað.
Ekki þarf lengur hárnákvæmt jafnvægi á milli kúplingar og bensíngjafar og aksturinn verður enn einfaldari.
Eldklár tæknibúnaður
Aldrei einn á ferð, alltaf tengdur. Með tilkomu 7″ snertiskjásins eru allar aðgerðir handhægar og öruggar. Bluetooth, 4 hátalarar og USB tengi.
Þú þarft aðeins að kanna samhæfni símans og hlaða inn forritinu; þá flytjast upplýsingarnar á milli þegar þú tengir símann við USB-tengi bílsins. Á sama tíma og síminn hleður sig í mælaborðinu flytjast allar upplýsingar yfir á Spegla-snertiskjáinn. Staðalbúnaður í Feel og Shine útfærslum.
Virkni margmiðlunarbúnaðar
Með Spegla-snertiskjánum geturðu stjórnað snjallsímanum og fengið beinan aðgang að forritum, tónlist og tengiliðum í símanum. Þessi frábæra tækni gerir þér kleift að njóta allra kosta snjallsímans í gegnum Spegla-snertiskjáinn:
Leiðsögukerfi, sími, tengiliðir, tónlist, hlaðvarp … allt verður þetta aðgengilegt við aksturinn.
Nett stærðarhlutföll
Nýr Citroën C1 státar af mátulegum stærðartölum (lengd 3,46 m / breidd 1,62 m / hæð 1,45 m). Nýr Citroën C1 er hannaður með það fyrir augum að rúma fjóra fullorðna farþega með þægilegum hætti
og þá er nóg pláss fyrir alla, bæði í framhluta og afturhluta bílsins.
Meiri snerpa
Nýr C1 er nettur í öllum stærðum og er því áfram einn best búni borgarbíllinn sem völ er á.
Fíngert byggingarlag hans, 4,8 metra beygjuradíus og rafmagnsstýring gera að verkum að innan borgarinnar er svo sannarlega auðvelt að athafna sig á nýjum Citroën C1..