Smelltu á flokk

29. júlí 2010

Frelsar þig úr viðjum vanans

Citroën C4 hefur hlotið frábærar móttökur gagnrýnenda og kröfuharðra bíleigenda sem kjósa gæði, þægindi, endingu og 100% þjónustu umboðsaðila eins og Brimborgar. Citroën C4 var fyrst sýndur á bílasýningunni í París í september 2004 og vakti þar mikla athygli fyrir laglega hönnun. Gagnrýnendur hlaða Citroën C4 lofi og sums staðar erlendis er nú þegar búið að kjósa Citroën C4 bíl ársins 2005. Bílnum hefur verið tekið með kostum og kynjum um alla Evrópu, einnig hér á landi.

Um er að ræða tvo bíla; annars vegar þrennra dyra coupe sem er sportlegur útlits, og hins vegar fimm dyra hlaðbak (sjá C4 Saloon). Báðir bílarnir eru jafn stórir og innanrýmið er hið sama.

Fjölmargar tækninýjungar

Citroën lætur sér ekki nægja að kynna til sögunnar laglega hönnun til að láta að sér kveða á þessum kröfuharða markaði, þar sem margir berjast um hylli kaupenda. Citroën velur þá leið að efna til sannkallaðrar tæknisýningar í nýjum C4. Í bílnum er að finna snjallar nýjungar sem miða að auknu öryggi og þægindum, svo sem akreinavara sem varar við með titringi í sæti sé ekið yfir brotna eða samfellda akreinalínu á yfir 80 km hraða án þess að nota stefnuljós, stefnuvirk Xenon framljós, sem lýsa fyrir horn og hafa til þessa nánast eingöngu verið að finna í mun stærri og dýrari bílum, árekstrarvara að framan og aftan og ennfremur búnað sem varar við þegar of lágur þrýstingur er í hjólbörðum. Mælaborðið er í senn einfalt og framúrstefnulegt og klætt mjúku efni. Stafrænn hraðamælir er áberandi og skýr og blasir við öllum. Það sem mörgum þykir þó athyglisverðast við innréttinguna er stýrismiðjan, sem er föst og hreyfist ekki þótt stýrinu sé snúið. Þessi nýung er bæði flott og stuðlar að auknu öryggi því æ fleiri stjórnrofum nýrra bíla eru komið fyrir í stýrinu og er þá öruggara og betra að þeir séu alltaf á sama stað en snúist ekki með stýrinu. C4 er hljóðlátur og með eina minnstu loftmótstöðu í sínum stærðarflokki. Hliðarrúður eru samlímdar sem eykur hljóðeinangrun bílsins.

Íslendingar eru kröfuharðir og fylgjast með nýjungum.
Þess vegna er Citroën C4 nýi bíllinn fyrir þig.

Til að fá upplýsingar um verð og búnað þessa bíls þá vinsamlegast hafið samband við söluráðgjafa.

Lestu ítarefnið

Lesa ítarefni

Lestu fréttirnar

mán. 28. feb. 2005
C4 Coupé nýtur vinsælda Meira »
Fleiri fréttir um C4 Coupé

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli