Citroën C3 hefur löngum haft á sér orðspor fyrir áreiðanleika og sparneytni. Á þetta hafa gagnrýnendur margoft bent og verið sammála um. Nú nýlega fjallaði einn gagnrýnandinn, Sigurður Már Jónsson, um nýja Citroën C3 Airdream á Íslenska bílavefnum bíllinn.is þar sem hann gefur honum góða umsögn. Hrósar hann bílnum fyrir að vera sparneytinn, snarpur og með vistvæna vél sem skili sér í mengunartölum sem séu til fyrirmyndar. Blaðamaður nefnir einnig samræmi í ytra útliti bílsins, að útsýni ökumanns sé gott og rými allt til fyrirmyndar.
Meira »Brimborg býr nú yfir góðu úrvali nýjustu kynslóða Citroën og verða bílarnir kynntir um helgina á stórsýningu Brimborgar. Citroën bílar hafa um áratugaskeið haft á sér gott orð fyrir tæknilega fullkomnun og áreiðanleika en jafnvel á Íslandi má sjá ævagamla Citroën bíla á götunum. Þá má geta þess að í Danmörku og í Ástralíu eru Citroën bílar með þeim áreiðanlegustu enda þjónustukerfi þeirra þrautreynt þar sem Citroën hefur verið á markaðnum nánast frá upphafi í þessum löndum. Brimborg leggur ekki síður áherslu á rekstrarhagkvæmni Citroën og þar er áreiðanleiki lykilatriði nýrra bíla eins og C3, C4 og C5.
Meira »Í vor var nýjasti Citroën DS bíllinn afhjúpaður í Shanghæ en áður höfðu DS3 og DS4 stimplað sig rækilega inn á meðal þeirra eru meðvitaðir um framúrskarandi hönnun. Citroën DS5 er djarflega hannaður og andi DS línunnar kristallast þessari nýjust gerð DS línunnar frá Citroën, fágaður stíll, glæsileg hönnun og gegnheil gæði... og núna síðast viðurkenning á framúrskarandi öryggi bílsins þegar hann hlaut 5 stjörnur hjá Euro NCAP.
Meira »Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.