Sendibílar | Verð og búnaður

Örugg gæði Citroën sendibíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir. Mikil áhersla er lögð á sparneytni og fyrirtaks vinnuaðstöðu með góðu aðgengi. Þú getur stólað á fyrsta flokks öryggi og fyrirmyndarþjónustu Citroën sendibíla. Komdu og prófaðu örugg gæði Citroën sendibíla.

Fyrirtækjum sem kaupa rafmagnssendibíl stendur til boða 500.000 kr. styrkur frá Orkusjóði. Sé bíllinn á rauðum númeraplötum geta þau innskattað 24% virðisaukaskatt af kaupverðinu og fengið styrkinn að auki, ásamt því að innskatta allan rekstrarkostnað sendibílsins. Styrkurinn nýtist einnig í langtímaleigu á Citroën sendibílum á rauðum númerum og geta fyrirtæki á sama hátt innskattað rekstrarkostnað.