Lítill en rúmgóður, stuttur en hávaxinn, einfaldur en tækni væddur, praktískur, sparsamur og skemmtilegur. Þetta er C2 - stóri smábíllinn frá Citroën. Hann er bæði fyrir unga fólkið og þá sem loksins hafa öðlast tíma fyrir sjálfa sig. Þú kemst á bragðið um leið og þú sest inn.
Þrátt fyrir ríkulegan öryggis- og staðalbúnað í bíl í þessum verð- og stærðarflokki tókst Citroën hið óframkvæmanlega: Að búa til stóran en léttan og eyðslugrannan smábíl. Það er erfitt að finna jafn hagkvæman bíl í rekstri: Lítil eyðsla, lægri tryggingar, lægri bifreiðagjöld. Citroën C2 er fyrir unga sem aldna.
Þægindi, flottur búnaður og frábærir aksturseiginleikar
Citroën C2 er frábær bíll sem hentar fólki á öllum aldri. Þess vegna geturðu valið um skemmtilegar vélar og mismunandi búnað. Þú velur samsetningu sem hentar þér best. Citroën C2 er búinn ríkuglegum staðalbúnaði en þrátt fyrir það er verðið óviðjafnanlega hagstætt.
Haltu á vit ævintýranna með Citroën C2. Komdu og kynntu þér skemmtilegan og rúmgóðan smálbíl sem er til í allt. Láttu drauminn rætast. Vertu öðruvísi en allir hinir, frjáls eins og fuglinn. C2 er fyrir þig!
Til að fá upplýsingar um verð og búnað þessa bíls þá vinsamlegast hafið samband við söluráðgjafa.