Það er ekki að ástæðulausu sem Citroën Berlingo Van hefur farið sigurför um gjörvalla Evrópu meðal þeirra sem þurfa á góðum bíl með mikið notagildi að halda. Hann er nú einn mest seldi sendibíllinn í álfunni og þann stutta tíma sem Brimborg hefur boðið þennan frábæra bíl hafa rúmlega fimm hundruð ánægðir aðilar hér á landi tekið hann í sína notkun. Frábær endursala ásamt góðri þjónustu eru hagnýtir þættir sem stuðla að góðu gengi rekstraraðila með Citroen Berlingo Van.
Allir Citroen Berlingo Van eru með sex hurðum, tveimur á hvorri hlið og tveimur að aftan. Auk þess er Berlingo Van með opnanlegum hlera á þaki, sem allir rekstraraðilar elska! Fáir eða enginn bíll stenst Citroën Berlingo Van snúning þegar kemur að notagildi fyrir rekstraraðila því auk þess sem þrjú þúsund lítra flutningsrýmið opnast vel er burðargetan hvorki meira né minna en 800 kg. Berlingo Van er einnig með toppgrindarfestingar.
Þú, sem ökumaður, verður að geta haft það gott! Þess vegna finnur þú vart betra vinnuumhverfi en í Berlingo Van: Bæði framsætin eru há, breið og upphitanleg. Útsýnið er frábært. Þú setur rétta geisladiskinn í hljómtækin, fellir fram bakið á sætinu við hliðina, sem verður að eins konar vinnuborði, og leggur frá þér kaffibollann eða fartölvuna. Að sjálfsögðu er rafdrif í hliðarrúðum og útispeglum. Og geymsluhólfin fjölmörg.