Smelltu á flokk

Citroën C3 • Um C3 

29. júlí 2010

Sonur byltingarinnar

Þú skoðar ekki Citroën. Þú upplifir. Citroën C3 er sannkallað listaverk. Í Citroën C3 hefur tekist að sameina form, rými, þægindi og öryggi á undraverðan og heildstæðan hátt. Citroën C3 er sterklega byggður og búinn miklum öryggisbúnaði, svo sem 4 öryggispúðum, ABS hemlum ásamt EBA neyðarhemlunar­búnaði. Þú getur treyst Citroen C3! Einstaklega ríkulegur staðalbúnaður, góð og há sætisstaða ásamt léttu rafdrifnu fjölstillanlegu stýri gera aðbúnað ökumanns og farþega eins og best verður á kosið.

C3. Hlaðinn lofi

Citroën C3 hefur verið hlaðinn lofi gagnrýnenda um gjörvalla Evrópu og fengið frábærar viðtökur almennings. Bílablaðamenn eiga ekki orð til að lýsa frábærri hönnun, góðum aksturseiginleikum, ríkulegum búnaði og mikilli sparneytni. Citroën C3 hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars hin mikilsvirtu verðlaun World Car Award. Þau eru til dæmis veitt fyrir hönnun, öryggi og gæði framleiðslunnar.

Lestu ítarefnið

Lesa ítarefni

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli